GUÐMUNDUR MÁR STEFÁNSSON

ÓLAFUR EINARSSON

LÝTALÆKNAR

Dansk versionEnglish version

Svæfing

María Sverrisdóttir svæfingalæknir starfar með Ólafi Einarssyni lýtalækni við flestar aðgerðir. Sveinn Geir Einarsson starfar með Guðmundi Má Stefánssyni við flestar aðgerðir. Þau Sveinn og María hafa sett saman upplýsingar um nokkur mikilvæg atriði varðandi svæfingu og staðdeyfingu, eins og undirbúning, lyf og fæðubótarefni og ofnæmi.

Fasta

Sjúklingur má ekki borða eða drekka í a.m.k. 6 klst. fyrir aðgerð.

  1. Það þýðir að ekki má fá sér “léttan morgunverð”, kaffi, gos eða vatn á þessum 6 klst.
  2. Dagana fyrir aðgerð má fólk borða og drekka eins og venjulega.
  3. Ástæðan fyrir föstu er sú að þegar sjúklingur er svæfður getur magainnihald runnið upp í vélinda og ofan í lungu. Þetta getur valdið lífshættulegri lungnabólgu. Það tekur magann um það bil 6 tíma að tæmast eftir að borðað hefur verið.
  4. Fólk sem tekur sýruhemjandi magalyf á að taka þau að morgni aðgerðardags, til að minnka magn súrs magasafa. Taka má lyfin með ¼ vatnsglasi.

Ofnæmi

Ef þú hefur ofnæmi er mikilvægt að fara yfir þessi atriði.

  1. Mikilvægt er að segja skurðlækni og svæfingalækni frá ofnæmi fyrir lyfjum eða efnum fyrir aðgerð.
  2. Auk svæfingalyfja gefur svæfingalæknir oft ýmis önnur lyf svo sem sýklalyf og/eða bólgueyðandi verkjalyf í æð meðan á aðgerð stendur og sjúklingur sefur.
  3. Látið einnig vita um ofnæmi fyrir plástrum og sótthreinsandi efnum.

Gátlisti fyrir viðtal

  1. Skilgreina eðli lýtisins
  2. Lesa um aðgerðina
  3. Fara yfir rök
  4. Sannfærast um ávinning
  5. Panta viðtal
Lýtalækningar svæfing - Sveinn Geir Einarsson svæfingalæknir

Svæfing - almennar upplýsingar

María Sverrisdóttir svæfingalæknirMaría Sverrisdóttir MD;
svæfir fyrir Ólaf Einarsson

María útskrifaðist frá HÍ 1989. Sérnám; Academich Ziekenhuis Dijkzigt, Rotterdam, Holland 1992 – 1997. Sérfræðilæknir HSS Reykjanesbæ 1997 – 2003. Sérfræðilæknir svæfingadeild St Jósefsspítala Hafnarfirði og Læknahúsinu ehf, Domus Medica frá 2003.





Sveinn Geir Einarsson svæfingalæknirSveinn Geir Einarsson MD, PhD;
svæfir fyrir Guðmund Má Stefánsson

Sveinn útskrifaðist frá HÍ 1985. Sérnám; Sahlgrenska Universitets Sjukhus, Gautaborg 1988 – 1991. Sérfræðingur á sama sjúkrahúsi 1991 – 1998. Varði doktorsritgerð („Respiration During Emergence From Inhalational Anesthesia“) frá háskólanum í Gautaborg nóv. 1997. Sá m.a. um svæfingar og svæfingalækna mönnun við Brånemark Osseointegration Center, Gautaborg, um tíma. Sérfræðingur Lsh Fossvogi 1998 – 1999. Yfirlæknir svæfingadeild St Jósefsspítala Hafnarfirði frá 1999. Svæfingalæknir Læknahúsið ehf, Domus Medica, frá 1999. Stjórnarformaður LH frá 2001 – 2007.

Rétt að hafa í huga fyrir aðgerðir í slæfingu eða deyfingu:

Fasta

Almennt gildir að vera fastandi á fasta fæðu 6 klst og tæran vökva 2 klst fyrir aðgerðir í svæfingu eða staðdeyfingu með slæfingu.

  1. Það tekur magann u.þ.b. 6 klst. að losa sig við fasta fæðu. Renni matur til baka upp úr maga, upp í kok og ofan í lungu getur það haft lífshættulegar afleiðingar.
  2. Það tekur lengri tíma fyrir feitmeti að tæmast úr maganum. Því ráðleggjum við viðskiptavinum okkar að borða fitulítinn mat daginn fyrir aðgerð.
  3. Tær vökvi (vatn, kaffi og te án mjólkur, tær safi, gos) frásogast mjög hratt frá maga. Því er einungis talað um 2ja klst föstu á tæran vökva. Betra er að drekka en að gera það ekki svo lengi sem það er leyfilegt. Þurrkur fyrir aðgerð getur valdið vandamálum undir og eftir aðgerðir.

Föst lyf og lyf sem viðkomandi tekur að staðaldri

Almennt gildir um lyf sem einstaklingur sem er að gangast undir aðgerð tekur að staðaldri:

  1. Blóðþrystingslyf: Leyfilegt er að taka inn öll blóðþrýstingslyf nema þvagræsandi lyf fyrir aðgerðir. Ástæðan er aukinn þvagútskilnaður meðan á aðgerð stendur sem getur valdið yfirþrýstingi á þvagblöðru.
  2. Blóðþynnandi ly: Inntöku lyfja eins og Hjartamagnyls, Kovars, Plavix og annarra blóðþynningarlyfja þarf stundum að hætta allt að tveimur vikum fyrir aðgerð. Mikilvægt er að ráðfæra sig við skurðlækninn um hvenær og/eða hvort hætta eigi inntöku þessarra lyfja.
  3. Magasýrubindandi lyf: Lyf eins og Omeprazol, Asyran, Losec eða Pariet er rétt að taka inn fyrir aðgerðir.
  4. Sykursýkilyf: Ekki skal sprauta sig með insúlíni eða taka töflur vegna sykursýki fyrir aðgerð vegna hættu á blóðsykursfalli. Fólki með sykursýki er bent á að láta skurðlækni vita af sykursýkinni, þar sem reynt er að hafa sykursjúka fyrsta að morgni til að hafa föstutímann í lágmarki.
  5. Verkjalyf: Þeim sem taka bólgueyðandi lyf (t.d. Ibufen, Voltaren, Naprosen, Celebra), Paratabs eða Parkodein/Parkodein Forte er bent á að taka þau ekki að morgni aðgerðardags. Við gefum viðskiptavinum okkar oft þessi lyf rétt fyrir aðgerð og því viljum við koma í veg fyrir að um ofskömmtun verði að ræða. Taki sjúklingar þessi lyf að morgni er þeim bent á að láta vita af því þegar þeir mæta.
  6. Svefnlyf: Óhætt er að taka öll venjuleg svefnlyf (s.s. Stillnoct og Imovane) kvöldið fyrir aðgerð.
  7. Lýsi: Fólki er bent á að lýsi hefur blóðþynnandi áhrif og því ráðleggjum við fólki að hætta inntöku lýsis ca. viku fyrir aðgerð.
  8. Fæðubótarefni: Efni sem notuð eru til að minnka matarlyst og/eða til að auka brennslu skal ekki nota ca viku fyrir aðgerð. Þau innihalda mörg örvandi efni sem geta haft áhrif á hjarta og æðakerfi í svæfingunni.

Ofnæmi

  1. Mikilvægt er að segja meðferðaraðilunum (hjúkrunarfræðingi, skurð- og svæfingalækni) frá ofnæmi fyrir lyfjum (s.s. bólgueyðandi verkjalyfjum og sýklalyfjum), plástrum og ofnæmi fyrir sótthreinsandi efnum sem hugsanlega eru notuð við þvott fyrir aðgerðir (t.d. joð).

Verkjameðferðir eftir aðgerðir

  1. Svæfingalæknar sjá fyrst og fremst um það sem snýr að verkjum og hugsanlegri ógleði eftir aðgerðir. Því hvetjum við sjúklinga okkar eindregið til að hafa samband komi slík vandamál upp eftir aðgerðir.
Vöknun

Við leggjum allt upp úr að veita viðskiptavinum okkar öryggi, ró og bestu mögulegu þjónustu.


  • Höfundaréttur
  • ©Höfundaréttur -2009
  • Guðmundur Már Stefánsson lýtalæknir
  • Ólafur Einarsson lýtalæknir
  • Vefsíðuhönnun: Emstrur
  • Vottun: XHTML / CSS
  • Hafa samband
  • info@lytalaeknir.is
  • Tímapantanir 563-1046 og 563-1047
  • Neyðarsími Guðmundar Más +354 618 3400
  • Neyðarsími Ólafs +354 897 1187
  • Guðmundur Már Stefánsson lýtalæknir
  • Ólafur Einarsson lýtalæknir
  • Domus Medica
  • Egilsgata 3
  • 101 Reykjavík