GUÐMUNDUR MÁR STEFÁNSSON

ÓLAFUR EINARSSON

LÝTALÆKNAR

Dansk versionEnglish version

Skapabarmaaðgerðir

Aðgerðir á skapabörmum (ytri kynfærum kvenna) eru vaxandi viðfangsefni lýtalækninga. Eftirspurn eftir þessum aðgerðum er fyrst og fremst hjá hópi yngri kvenna 20-45 og helstu ástæður fyrir aðgerðinni eru útlitslegar auk þess sem að stórir innri skapabarmar geta stundum valdið ertingu og sviða í kynlífi. Þessar konur eiga það sammerkt að innri skapabarmar (labia minora) eru stærri og síðari en ytri skapabarmarnir (labia majora) en þetta finnst mörgum konum vera töluverð lýti. Ennfremur eins og áður er minnst á þá geta stórir innri skapabarmar valdið særindum við samfarir þar sem að slímhúðarnúningur getur orðið töluverður.

Gátlisti fyrir viðtal

  1. Skilgreina eðli lýtisins
  2. Lesa um aðgerðina
  3. Fara yfir rök
  4. Sannfærast um ávinning
  5. Panta viðtal
Skapabarmaaðgerðir

Skapabarmaaðgerðir

Aðgerð

Aðgerð á skapabörmum fer fram í Domus Medica og eru tvær leiðir mögulegar. Annars vegar er hægt að gera þessar aðgerðir í slævingu og staðdeyfingu eða þá í svæfingu. Aðgerðin fer þannig fram að hluti af innri skapabörmum er fjarlægður og minnka þá innri skapabarmarnir töluvert og markmið aðgerðarinnar er sá að ytri skapabarmar hylji algjörlega þá innri.


Eftir aðgerð

Eftir aðgerð fer sjúklingur svo til sins heima og hittir lækninn aftur venjulega eftir 6-7 daga. Þörf er á að taka miðlungs sterkar verkjatöflur í 1 til 2 daga auk þess sem staðdeyfikrem borið á saumana dregur mjög úr sviða og ertingu við þvaglát eða við þvott. Neðanþvottur er ráðlagður daglega á meðan gróningu stendur sem venjulega er 10-14 dagar. Venjulega eru ekki gefin sýklalyf í kjölfar aðgerðarinnar, og konum ráðlagt að hafa ekki samfarir fyrr en að öll sár eru gróin ca 2-3 vikur. Notað er venjulegir saumar sem að eru sjálfeyðandi og því saumataka óþörf.


Áhætta

Helstu áhættuþættir við aðgerðir sem slíkar eru blæðingar, en þá getur blætt töluvert úr sárinu eða að það myndist blóðgúll sem að stundum þarf að tæma í annarri aðgerð. Sýkingar eru sjaldgæfar og þá sérstaklega ef að fyllsta hreinlætis er gætt til með daglegum neðanþvottum. Í nokkrum tilfellum þarf stundum síðar að fjarlægja örlitlar slímhúðarfellingar kringum örin ef að þetta veldur konum óþægindum. Dofi á aðgerðarsvæði er mjög sjaldgæfur en ef til staðar hverfur venjulega á nokkrum mánuðum. Konur hafa kvartað um verki við samfarir fyrstu vikur eftir að gróningu er lokið en slíkir verkir hverfa oftast fljótt og fullkomlega nokkrum dögum til örfárra vikna.


  • Höfundaréttur
  • ©Höfundaréttur -2009
  • Guðmundur Már Stefánsson lýtalæknir
  • Ólafur Einarsson lýtalæknir
  • Vefsíðuhönnun: Emstrur
  • Vottun: XHTML / CSS
  • Hafa samband
  • info@lytalaeknir.is
  • Tímapantanir 563-1046 og 563-1047
  • Neyðarsími Guðmundar Más +354 618 3400
  • Neyðarsími Ólafs +354 897 1187
  • Guðmundur Már Stefánsson lýtalæknir
  • Ólafur Einarsson lýtalæknir
  • Domus Medica
  • Egilsgata 3
  • 101 Reykjavík