Ólafur hefur starfað sem læknir í meira en þrjá áratugi. Hann hefur lokið sérnámi bæði sem sérfræðingur í almennum skurðlækningum og sem sérfræðingur í lýtalækningum. Hann hefur sérfræðingsleyfi í báðum greinum á Íslandi, í Svíþjóð og Danmörku .
Guðmundur hefur starfað hér á landi sem sérfræðingur í lýtaskurðlækningum frá 1994,eftir að hann lauk sérfræðinámi í lýtaskurðlækningum í Bretlandi. Guðmundur lauk læknanámi frá læknadeild Háskóla Íslands 1985,og eftir kandidatsnám á sjúkrahúsum í Reykjavík hélt hann til sérnáms í lýtalækningum árið 1989 og nam lýtalækningar í Bretlandi, í borgunum Bristol,Middlesbrough og Liverpool.
Á Íslandi starfa læknar samkvæmt læknalögum og gangast jafnframt undir siðareglur (Codex Ethicus) sem Læknafélag Íslands setur félagsmönnum. Innan þessa ramma er hlutverk lækna skilgreint út frá einstaklingsbundnum hagsmunum sjúklingsins og samfélagslegri ábyrgð lækna. Hér að neðan eru tenglar á vefsíður Landlæknisembættisins, Læknafélags Íslands og siðareglur lækna og eru einstaklingar sem vilja kynna sér starfsforsendur lækna hvattir til þess að opna þessar vefsíður.
Guðmundur hefur verið starfandi á Íslandi sem sérfræðingur í lýtaskurðlækningum frá 1994,eftir að hann lauk sérfræðinámi í lýtaskurðlækningum í Bretlandi.
Guðmundur lauk læknanámi frá læknadeild Háskóla Íslands 1985,og eftir kandidatsnám á sjúkrahúsum í Reykjavík hélt hann til sérnáms í lýtalækningum árið 1989 og nam lýtalækningar í Bretlandi, í borgunum Bristol,Middlesbrough og Liverpool.Hann lauk þar sérfræðinámi og er meðlimur í breska lýtalæknafélaginu (Overseas Member of BAAPS).
Guðmundur starfar sem sérfræðingur á Bruna- og Lýtalækningadeild Landspítalans í Fossvogi,auk St Jósefsspítala í Hafnarfirði.Hann rekur einnig læknastofu í Domus Medica í Reykjavík.
Guðmundur fæst við alls konar verkefni á sviði lýta- og fegrunarlækninga,bæði brjóstaaðgerðir (stækkanir,lyftingar og minnkanir) auk ýmissa fegrunarlækninga í andliti,nefaðgerða,fitusogsaðgerða,útlitsbætandi aðgerða á magahúð osfrv.
Guðmundur hefur sótt ýmis námskeið og fyrirlestra í lýtalækningum bæði hérlendis og erlendis, og sinnir stundakennslu læknanema við Háskóla Íslands.
Ólafur Einarsson útskrifaðist úr læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1976 og fékk almennt lækningaleyfi í desember 1977. Árið 1976 hóf hann framhaldsnám í almennum skurðlækningum í Svíþjóð og starfaði m.a. við sjúkrahús í Gautaborg og Eksjö. Að loknu framhaldsnámi í almennum skurðlækningum fékk hann sérfræðingsleyfi í Svíþjóð og Íslandi árið 1983. Eftir framhaldsnám í almennum skurðlækningum hóf hann framhaldsnám í lýtalækningum við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn og hlaut sérfræðingsleyfi í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi árið 1985. Hann er því með sérfræðiréttindi bæði sem almennur skurðlæknir og lýtalæknir í öllum löndunum þremur. Frá árinu 1986 - 2009 starfaði Ólafur við lýtalækningadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss og þar af sem yfirlæknir deildarinnar í eitt og hálft ár frá janúar 1994 til júní 1995. Ólafur er einn af reyndustu lýtalæknum landsins og helsti sérfræðingur landsins í aðgerðum á börnum með skarð í vör og gómi. Þá hefur Ólafur starfrækt læknastofu í Domus Medica frá árinu 1986 og á þeim tíma gert fjölda lýta- og fegrunaraðgerða.
Ólafur hefur tekið þátt í fjölmörgum ráðstefnum, haldið fjölda fyrirlestra og ritað greinar í fagtímarit um læknisfræði. Í október s.l.2006 hélt hann m.a. þrjá fyrirlestra um fegrunaraðgerðir, brunasár og skarð í vör á alþjóðlegri ráðstefnu í Perú í Suður Ameríku. Þá hefur Ólafur sinnt klínískri kennslu gegnum árin, m.a. við Renströmska Sjukhuset í Gautaborg, Hjúkrunarskóla Íslands, námsbraut í sjúkraþjálfun við HÍ og kennslu læknanema við HÍ. Hann hefur tekið virkan þátt í samtökum lýtalækna sem og samstarfi lýtalækna á Norðurlöndum og samtökum þeirra. Á námsárunum sat Ólafur í stjórn Félags læknanema, var um tíma meðstjórnandi í Læknafélagi Reykjavíkur og sat um nokkurra ára skeið í stjórn Domus Medica. Auk lækningaleyfis á Íslandi hefur Ólafur leyfi til að stunda lækningar í Danmörku og Svíþjóð og talar, auk íslensku, dönsku, sænsku og ensku reiprennandi. Þá hefur Ólafur gegnum árin sótt sértæka starfsþjálfun og endurmenntun til fjölmargra staða svo sem Danmerkur, Japans og Kaliforníu