
Brjóstastækkun er skurðaðgerð gerð í þeim tilgangi að stækka og breyta lögun brjósta. Ástæðurnar fyrir því að konur vilja stærri brjóst geta verið margar. Til dæmis geta brjóst minnkað eftir meðgöngu og fæðingu og orðið minni en þau voru fyrir óléttu.
Brjóst geta einnig verið misstór og síðast en ekki síst geta brjóstin verið of lítil. „Of lítil“ í þessu samhengi er hins vegar afar afstæð og einstaklingsbundin skilgreining. Ef þú ert að hugsa um brjóstastækkun ættu neðangreindar spurningar og svörin við þeim að hjálpa til við að meta þörf á slíkri aðgerð og útskýra ferlið frá viðtali fram yfir aðgerð. Ef þú telur að brjóstastækkun henti þér er rétt að panta tíma hjá lýtalækni. Spurningalistinn er settur saman út frá algengustu spurningum sem fólk hefur varðandi brjóstastækkun og ætti að vera gagnlegur til að átta sig á tímanum sem aðgerðin tekur, áhættu og yfirleitt hvort útlit þitt kalli virkilega á aðgerð.
Brjóstastækkun er tiltölulega einföld og örugg aðgerð. En eins og með aðrar skurðaðgerðir almennt, þá fylgir henni ákveðin áhætta og vandamál geta komið upp. Flestar konur sem fara í brjóstastækkunaraðgerð finna aldrei fyrir vandamálum né verða varar við vandamál henni fylgjandi. En vegna áralangrar umræðu um vandamál og málaferli tengd brjóstapúðum er rétt að fara ítarlegar yfir áhættuþætti tengda brjóstastækkunum. Þá eru þeir einstaklingar sem hyggja á slíka aðgerð hvattir til þess að fara vandlega yfir alla mögulega áhættu og ræða það við lýtalækninn.
Þó svo að engar rannsóknir hafi sýnt fram á að púðar í brjósti geti orsakað krabbamein geta þeir breytt þeim aðferðum sem þarf að viðhafa við leit að krabbameini í brjósti. Þegar þú ferð í venjubundna krabbameinsleit þarftu að láta vita af púðanum í brjóstinu.
Brjóstastækkun getur bætt útlit þitt og sjálfstraust en getur ekki uppfyllt væntingar um hið fullkomna útlit. Áður en þú ákveður að fara í brjóstastækkunaraðgerð skaltu hugsa vandlega um þær væntingar sem þú hefur um útlit þitt eftir aðgerð, og ræða þær ítarlega við lýtalækninn. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að brjóstastækkunaraðgerð getur bætt útlit þitt og líðan en ekki fært þér fullkomin brjóst. Því er mikilvægt að hafa raunsæjar hugmyndir um árangurinn.
Brjóstapúðar sem notaðir eru við brjóstastækkun eru sílikonhjúpar sem annaðhvort eru fylltir með sílikongeli eða saltvatni. Hér á landi er mun algengara að nota sílikonpúða en saltvatnspúða vegna þess að sílikonpúðar laga sig betur að brjóstinu. Með því að koma púðanum fyrir undir brjóstinu getur lýtalæknirinn stækkað brjóstin um eina skálarstærð eða meira. Á liðnum áratug hefur sílikonpúðinn verið ítarlega rannsakaður og mestallur ágreiningur um öryggi sílikonpúðans verið leystur. En eins og fram kemur í áhættuþáttum hér að framan er þó ekki hægt að útiloka að vandamál komi upp
Í fyrsta viðtali mun lýtalæknirinn meta forsendur þínar til að fara í aðgerð og heilsu þína almennt með tilliti til brjóstastækkunar. Mikilvægt er að ræða við lýtalækninn um ástæður þínar og væntingar á opinskáan og hreinskilinn hátt. Einnig þarftu að búa þig undir raunsætt og opinskátt mat lýtalæknisins varðandi möguleika þína og áhættu við aðgerðina. Sérstaklega er mikilvægt að láta lækninn vita ef um er að ræða arfgenga sjúkdóma í brjóstum í fjölskyldu þinni, hvort þú reykir og hvaða lyf og bætiefni þú notar o.s.frv.
Aðgerðin er framkvæmd á skurðstofu Læknahússins í Domus Medica. Skurðstofur Guðmundar Más Stefánssonar og Ólafs Einarssonar lýtalækna eru á 4. og 6. hæð
Í öllum tilvikum fer brjóstastækkunaraðgerð fram í svæfingu. Svæfingin er gerð af svæfingalækni sem heldur þér sofandi gegnum aðgerðina og fylgist með þér á meðan á aðgerðinni stendur. Einnig meðan þú ert að vakna og jafna þig fyrstu stundirnar eftir aðgerð. Svæfingatækni hefur þróast á síðustu árum þannig að svæfingar eru í dag öruggari, fólk fljótara að jafna sig og minni hætta er á ógleði en áður var.
Áður en þú ferð í aðgerðina þarftu að ræða við lýtalækninn um aðgerðina sjálfa og fullvissa bæði sjálfa þig og lækninn um að þú hafir fullan skilning á því sem fram fer. Aðferðin sem er notuð til að setja púðana í brjóstin og staðsetja þá rétt byggist á líkamsbyggingu þinni. Púðarnir eru ýmist settir undir kirtilinn eða undir bringuvöðvann. Oftast er skurður opnaður undir brjóstinu en þó stundum við geirvörtu eða handarkrika. Öllum aðferðum er beitt til að ör verði sem minnst áberandi. Gegnum skurðinn útbýr lýtalæknirinn hólf, ýmist undir bringuvöðvanum eða undir brjóstkirtlinum, þar sem sílikonpúðanum er komið fyrir. Ef herping á sér stað verður hennar mun minna vart undir en yfir vöðvanum. Fyrst eftir aðgerð fylgja því hins vegar meiri verkir að staðsetja púðann undir vöðva.
Brjóstastækkunaraðgerð tekur yfirleitt einn og hálfan til tvo tíma. Þá getur vöknun tekið einn til tvo tíma þannig að heildartími aðgerðar með vöknun er um fjórir tímar.
Eftir aðgerðina er líklegt að þú verðir þreytt og finnir fyrir særindum í skurðinum. Slíkum óþægindum er þó hægt að halda niðri með verkjalyfjum. Flestar konur sem fara í brjóstastækkunaraðgerð eru þó orðnar rólfærar eftir einn til tvo sólarhringa. Eftir aðgerðina er sett grisja á sárið og umbúðir utan um brjóstin og eru þær fjarlægðar eftir fáeina daga. Fyrstu tvær vikurnar eftir aðgerð gætir þú fundið fyrir sviða í geirvörtunum sem minnkar eftir því sem mar og bólga hverfur og sárin gróa. Þú getur þó orðið vör við bólgu í brjóstunum í þrjár til fimm vikur. Venjulega er skurðum lokað með saumum sem leysast upp og þarf því ekki að fjarlægja neina sauma.
Yfirleitt er hægt að snúa til vinnu fáeinum dögum eftir aðgerð þó að tegund og eðli vinnunnar skipti hér nokkru máli. Mikilvægt er að fylgja fyrirmælum lýtalæknisins til hins ýtrasta varðandi líkamsrækt og hreyfingu. Líklega eru brjóstin frekar viðkvæm fyrstu þrjár vikurnar og þola illa snertingu. Eftir það eru brjóstin sjaldnast sár og ætti snerting að þeim tíma liðnum ekki að koma að sök. Í a.m.k. sex vikur er skurðurinn sýnilegur og roði í sárinu. Eftir það verða sárin svipuð um nokkurn tíma og gætu alveg eins virst víkka út. Eftir nokkra mánuði byrja sárin eftir skurðina að fölna en hverfa aldrei alveg. Rétt er að verja örin fyrir sólarljósi meðan þau eru rjóð.
Fyrir flestar konur sem taka ígrundaða ákvörðun um að fara í brjóstastækkun er reynslan afar ánægjuleg. Í mörgum tilfellum jafnvel stórkostleg ef marka má umsagnir. Eins og að framan getur er brjóstastækkunaraðgerð ekki alveg áhættulaus. Því er nauðsynlegt að láta lýtalækninn fylgjast reglulega með til að hægt sé að bregðast við fljótt ef vandamál koma upp. Ákvörðun þín um að fara í brjóstastækkunaraðgerð er mjög persónuleg ákvörðun og ekki víst að allir í kringum þig hafi sama skilning á ákvörðuninni og þú. Hið mikilvæga er að þú sért sátt við ákvörðunina og að hún skili þeim árangri og markmiði sem þú settir þér. Brjóstastækkunaraðgerð hindrar ekki brjóstagjöf síðar á ævinni.